13 september 2017
Framlög til löggæslu- og landhelgismála hækkuð vegna aukins umfangs
Almanna- og réttaröryggi er það málefnasvið dómsmálaráðuneytis sem er mest að umfangi en fjárveitingar næsta árs verða 24,5 milljarðar króna samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Undir sviðið falla löggæslu- og landhelgismál, ákæruvald og réttarvarsla, réttaraðstoð og bætur og fullnustumál.