04 júní 2004
Nefnd til að ræða álitaefni er snerta lög um helgidagafrið
<p>Þann 1. júní skipaði dómsmálaráðherra nefnd, skipaðri fulltrúum dóms- og kirkjumálaráðuneytis, Biskupsstofu og Samtaka verslunar og þjónustu, til að ræða álitaefni er snerta lög um helgidagafrið, nr. 32/1997. Nefndin á að semja skýrslu um málið eða gera tillögur um breytingar á lögunum, sé um það samstaða.</p>