29 ágúst 2018
Kristján Þór leggur áherslu á sjálfbæra nýtingu og vernd hafsvæða á ráðstefnu sjávarútvegsráðherra Norður-Atlantshafsins
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sat 23. ráðstefnu sjávarútvegsáðherra Norður-Atlantshafsins í Þórshöfn í Færeyjum 27.-28. ágúst. Þau ríki sem funda eru Ísland, Færeyjar, Kanada, Noregur, Rússland, Grænland og Evrópusambandið fyrir hönd aðildarríkja þess.