23 febrúar 2006
Forsætisráðherra hjá íslenskum fyrirtækjum í Bretlandi
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra heimsótti í dag höfuðstöðvar Excel Airways, dótturfélags Avion Group, og kynnti sér starfsemi félagsins og opnaði formlega Mitre Court, höfuðstöðvar Travel City sem er í eigu félagsins.