27 mars 2013
Ný verkefnisstjórn rammaáætlunar skipuð
<p>Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur skipað verkefnastjórn rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða. Verkefnisstjórn er skipuð til fjögurra ára í senn og skal að fengnum niðurstöðum faghópa, samráði við haghafa og umsagnar almennings vinna drög að rökstuddum tillögum til ráðherra um flokkun virkjunarhugmynda og afmörkun virkjunar- og verndarsvæða.</p>