05 júlí 2022
Danmörk, Ísland og Noregur reiðubúin að fullgilda samninga um aðild Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu
Forsætisráðherrar Danmerkur, Íslands og Noregs segja í sameiginlegri tilkynningu að allt sé nú til reiðu til að löndin þrjú fullgildi samninga um aðild Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu. Tilkynningin er gefin út í kjölfar þess að aðildarsamningar Finnlands og Svíþjóðar voru undirritaðir fyrr í dag.