17 mars 2017
Heildstætt yfirlit yfir vistgerðir á Íslandi komið út
<p>Náttúrufræðistofnun Íslands hefur gefið út ritið Vistgerðir á Íslandi ásamt kortum í kortasjá. Með útgáfunni er í fyrsta sinn birt heildstætt yfirlit og lýsing á vistgerðum Íslands, útbreiðslu þeirra, stærð og verndargildi. Með vistgerðalýsingum fyrir landið er tekin upp ný aðferðafræði við flokkun og kortlagningu lífríkis. </p>