21 júní 2019
Sigríður Snævarr afhendir trúnaðarbréf í Singapúr
Í lok maímánaðar afhenti Sigríður Snævarr frú Halimah Yakob, forseta Singapúr, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands. Athöfnin fór fram í Istanahöllinni í Singapúr og af Íslands hálfu voru viðstaddir athöfnina, þeir Prakash Pillai kjörræðismaður Íslands í Singapúr og Halldór Elís Ólafsson viðskiptafulltrúi í Tokyo, stjórnarmaður í Norræna Nýsköpunarsetrinu í Singapúr.