13 febrúar 2003
Börn reykja minnst á Vestfjörðum
Tæp sjö prósent grunnskólanema á aldrinum 12 - 16 ára reykja, samkvæmt könnun héraðslækna og Krabbameinsfélagsins. Grunnskólanemar á Vestfjörðum reykja minnst af jafnöldrum sínum í landinu, eða 3,6 prósent þeirra, en mest reykja þeir í Reykjavík þar sem hlutfallið er 7,7 prósent.