29 nóvember 2013
Alþjóðleg verðlaun fyrir árangur Íslands á sviði kynjajafnréttis
<p>„Ég vonast til að Ísland geti lagt af mörkum í samstarfi þjóðanna og tekið virkan þátt í því mikilvæga sameiginlega verkefni að bæta stöðu kvenna og stuðla að jafnrétti kynjanna, hvar sem er í heiminum“ sagði Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, þegar hún veitti viðtöku jafnréttisverðlaunum fyrir Íslands hönd á þingi Alþjóðasamtaka þingkvenna í vikunni.</p>