31 desember 2021
Fréttaannáll utanríkisráðuneytisins árið 2021
Árið 2021 hefur verið viðburðaríkt í starfsemi utanríkisþjónustunnar. Skrifað var undir fríverslunarsamning við Bretland í júlí, ráðherrafundur Norðurskautsráðsins var haldinn í Reykjavík í maí og Ísland kjörið í framkvæmdastjórn UNESCO í nóvember, svo dæmi séu tekin. Utanríkisráðuneytið hefur tekið saman yfirlit helstu frétta ársins 2021 í meðfylgjandi fréttaannál.