17 júlí 2015Ministry of Finance and Economic AffairsStandard and Poor's upgrades Iceland's rating
Standard & Poor's Ratings Services has raised its long- and short-term foreign and local currency sovereign credit ratings on the Republic of Iceland to ‘BBB/A-2' from 'BBB-/A-3'. The outlook is Stable.

17 júlí 2015Undirbúningur hafinn vegna breytinga á lögræðislögum
Hinn 1. júlí sl. samþykkti Alþingi lög sem fela í sér breytingar á ákvæðum lögræðislaga. Markmið laganna er að bæta framkvæmd lögræðislaga og tryggja að lagaumhverfi og verklag sé í samræmi við alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar en breytingin er meðal annars liður í undirbúningi fullgildingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

17 júlí 2015Nýskipan ákæruvalds með nýju embætti héraðssaksóknara og varahéraðssaksóknara
Með nýsamþykktum lögum um breytingu á lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum (skipan ákæruvalds, rannsókn efnahagsbrota o.fl.) var skipan ákæruvalds breytt með stofnun nýs embættis héraðssaksóknara er taki til starfa 1. janúar 2016 og verður embætti sérstaks saksóknara lagt niður frá sama tíma.

17 júlí 2015Mál 14120069 Umhverfismat áætlana, deiliskipulag Dyrhólaeyjar
Úrskurður um stjórnsýslukæru Náttúruverndarsamtaka Suðurlands vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar frá 29. september 2014 þess efnis að breyting á deiliskipulagi Dyrhólaeyjar falli ekki undir lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.

17 júlí 2015Niðurstaða þriðju ráðstefnunnar um fjármögnun þróunar í Addis Ababa
Á miðvikudagskvöld samþykktu aðildarríki Sameinuðu þjóðanna niðurstöðuskjal þriðju ráðstefnunnar um fjármögnun þróunar sem lauk í gær í Addis Ababa í Eþíópíu. Niðurstaðan felur í sér alþjóðlegt samkomulag um fjármögnun þróunar sem stuðli að hagvexti og félagslegri þróun með tilliti til umhverfisverndar.

17 júlí 2015Styrkir Snorra Sturlusonar
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum auglýsir árlega styrki Snorra Sturlusonar lausa til umsóknar.

17 júlí 2015Sjávarútvegsráðherra fagnar niðurstöðu ráðherra ríkja í Norður-Atlantshafinu
Samþykkt var á fundi sjávarútvegsráðherra ríkja í Norður-Atlantshafinu, sem nú stendur yfir á Möltu, að Ísland boði til sérstaks fundar háttsettra embættismanna vegna stöðunnar í viðræðum strandríkja um deilistofna. Markmiðið með fundinum er að gaumgæfa nýjar leiðir sem gætu leitt til samninga um deilistofna, en um engan þeirra er nú gildandi samningur.…
17 júlí 2015Mjólk og mjólkurafurðir hækka í verði um 3,58%
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið samhljóða ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verðleggur, hækki 1. ágúst nk. um 3,58%, nema smjör sem hækkar um 11,6%.
17 júlí 2015Standard og Poor's hækkar lánshæfiseinkunn ríkissjóðs
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard og Poor's tilkynnti í dag um hækkun á lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands úr BBB- í BBB. S&P hefur einnig hækkað einkunnina til skamms tíma úr A-3 í A-2. Horfur verða áfram stöðugar.

16 júlí 2015Mál nr. 13/2015. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Með kæru 24. júní 2015 kærir EFLA hf. útboð varnaraðila Landsvirkjunar nr. 20188 auðkennt „Stækkun Búrfellsvirkjunar“. Kærandi krefst þess aðallega að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila Landsvirkjunar um að ganga til samninga við varnaraðila Verkís hf.…
16 júlí 2015Ný reglugerð um gæði og öryggi sjúkraskráa
Tekið hefur gildi ný reglugerð um sjúkraskrár sem kveður á um færslu sjúkraskrárupplýsinga og örugga meðferð þeirra, svo sem varðveislu og aðgang að þeim. Reglugerðin markar tímamót, því þar með verður unnt að opna að fullu fyrir samtengingu sjúkraskráa milli heilbrigðisstofnana í samræmi við markmið um öryggi sjúklinga og meðferð þeirra.

16 júlí 2015Hagstæð tilboð í hönnun nýs meðferðarkjarna Landspítala
Tilboð í fullnaðarhönnun meðferðarkjarna vegna nýbygginga við Landspítala voru opnuð í dag. Lægsta tilboðið átti Corpus 3 sem bauð tæpa 1,4 milljarða króna. Það er um 51% af áætluðum kostnaði sem hljóðaði upp á rúma 2,7 milljarða. Fjögur tilboð bárust og voru öll umtalsvert lægri en kostnaðaráætlunin.