14 október 2010
Össur Skarphéðinsson á sameiginlegum fundi utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra NATO í Brussel
<p>Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sat í dag sameiginlegan fund utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel. Meginefni fundarins voru drög Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóra bandalagsins, að nýrri framtíðarstefnu NATO.</p>