09 janúar 2009
Ríkisstjórn ræður ráðuneytisstjóra í sérverkefni
Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu, hefur fengið 6 mánaða leyfi frá störfum til að sinna verkefnum fyrir ríkisstjórnina. Við stöðu hans tekur Halldór Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu. Við stöðu Halldórs tekur Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.