12 febrúar 2015
Óskað eftir verkefnum frá varðliðum umhverfisins
<p>Óskað er eftir verkefnum til þátttöku í hinni árlegu verkefnasamkeppni, Varðliðum umhverfisins. Þetta er í 9. sinn sem samkeppnin er haldin meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. </p>