15 desember 2020
Breytingar varðandi afhendingu bóluefnis frá Pfizer
Áætlun Pfizer um afhendingu bóluefna hefur raskast og ljóst að færri skammtar koma til Íslands um áramót en samningar gerðu ráð fyrir. Miðað var við að Ísland fengi þá rúmlega 21.000 skammta en þeir verða um 10.000. Í janúar og febrúar er von á um 17.500 skömmtum til viðbótar. Samtals dugir þetta bóluefni fyrir tæplega 14.000 manns.…