01 desember 2023
Óskað eftir leiguhúsnæði fyrir Grindvíkinga
Til að styðja enn frekar við öflun húsnæðis fyrir Grindvíkinga sem rýma hafa þurft heimili sín hefur Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir, að höfðu samráði við Grindavíkurbæ, fjármála- og efnahagsráðuneytið, forsætisráðuneytið og innviðaráðuneytið, auglýst eftir fasteignum tímabundið til leigu fyrir íbúa Grindavíkur.