22 mars 2013
Fundað með olíumálaráðherra Noregs um þjónustu við væntanleg olíusvæði
<p>Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, átti í morgun fund með Ole Borten Moe, olíu- og orkumálaráðherra Noregs, og kynnti honum hugmyndir um að á Íslandi byggi Íslendingar, Norðmenn og Grænlendingar upp þjónustu við væntanleg olíusvæði þjóðanna norðan Ísland.</p>