22 júlí 2003
Dómsmálaráðuneytið kynnir viðmiðunarreglur vegna útihátíða
Dómsmálaráðherra Björn Bjarnason sendi hinn 27. júní sl. ríkislögreglustjóra og öllum lögreglustjórum viðmiðunarreglur dómsmálaráðuneytisins við útgáfu skemmtanaleyfa vegna útihátíða með sérstöku tilliti til verslunarmannahelgarinnar. Í reglunum er lögð áhersla á samráð og samvinnu lögreglu, heilsugæslu, björgunarsveita, mótshaldara og annarra skipuleggjanda við undirbúning og framkvæmd hátíða.