26 ágúst 2021
Gagnagrunnur um stuðning Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu formlega opnaður
Vefsvæðinu www.openaid.is var formlega ýtt úr vör í dag af Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Um er að ræða gagnagrunn um stuðning Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu þar sem almenningi og haghöfum gefst kostur á að rýna í opinber framlög Íslands til málaflokksins.