09 júlí 2019
Óformlegur ráðherrafundur ÖSE í Slóvakíu.
Átakavarnir og styrking þeirra í framtíðarstarfi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) voru meginviðfangsefni óformlegs ráðherrafundar stofnunarinnar, sem haldinn var Tatra-fjöllum í Slóvakíu 9. júlí. Guðni Bragason, fastafulltrúi Íslands hjá ÖSE í Vínarborg, sat fundinn fyrir hönd Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra.